|
|
ISCH Carriegame
Bridget / Kókó |
|
|
Besti labrador
sýningar október 2005
BOB
2.10.2005
Íslenskt
meistarastig og
CACIB |
 |
Besti labrador
sýningar júní 2006
BOB
24.6.2006
Íslenskt
meistarastig |
|
Carriegame
Bridget varð
íslenskur
meistari á
sýningu Hundaræktarfélagsins þann 28. júní 2008
og
besta tík
tegundar í
þriðja skipti. |
Þetta er hún Kókó en ræktunarnafn hennar er
ISCH Carriegame Bridget IS07678/04.
Kókó er fædd 10. júlí 2003 og kemur úr Carriegame ræktun Gail Dodd en frá henni
hafa komið margir afar fallegir hundar.
Kókó hefur alltaf hlotið
1. einkunn, þrisvar heiðursverðlaun, 3 meistaraefni, 3 íslensk meistarastig, 1
alþjóðlegt meistarastig (CACIB) þrisvar
verið valin besta tík tegundar og tvisvar besti hundur tegundar. Á sumarsýningu
í V'iðidal 2008 hlaut hún þriðja meistarastigið sitt og varð þar af leiðandi
fyrsti íslenski meistarinn í 5 ár. Í október 2007
gat hún ekki tekið þátt í sýningu en þá tók 22 mánaða dóttir hennar sig til og
var valin besti labrador tegundar, hlaut meistarastig og CACIB og er greinilega
að feta í fótspor móður sinnar og föður. Kókó var einnig valin besti
hvolpur tegundar á sýningu í fæðingarlandi sínu Bretlandi í hópi 4 mánaða hvolpa
rétt áður en hún kom til Íslands í lok ársins 2003. Hér má sjá
Ættbók á
HRFÍ og sýningaárangur.
|